Árgangur ´79 af Skaganum

Velkomin/n á heimasíðu árgangs 1979 af Skaganum

13.04.2007 20:21:38 / arg79

Smá reminder!!

Mér datt nú allt í einu í hug að skella inn smá færslu hér ef einhver skyldi slysast til að kíkja! Ætlaði að minna ykkur á að nú eru bara 3 ár í næsta mót...hahaha!! Styttist óðum! Ætla að vona að nefndin sitji sveitt að störfum og haldi árgangsmót aldarinnar 2010:haha: og fyrir þá sem ekki muna þá er þetta nefndin fyrir næsta mót!! Davíð, Erling, Hannibal, Trausti, Svanur Dan og Thelma Hrund.

Annars vona ég að allir hafi það sem best og passið að vera ekki óléttar eftir 3 ár stelpur...hehe!!

 

Bestu kveðjur til allra

Ása Þóra G


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2005 20:17:40 / arg79

Loksins loksins....

Jæja við Magga vorum að setja inn myndir af árgangsmótinu, reyndar eru ekki allar komnar inn, en við erum að vinna í þessu!!:D

Njótið vel...

Ása og Magga Inga


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 14:11:00 / arg79

Nefndin árið 2010

Ákvað að skella hér inn nefndinni sem var kosin 21.maí síðastliðinn.
En það eru Davíð, Erling, Hannibal, Trausi, Svanur Dan og Thelma Hrund. Svaðaleg nefn þar á ferð8)


» 35 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 12:27:44 / arg79

Er maður illa haldin eða hvað?

Já ég held það bara:$
Málið er það að ég er svona nýlega vöknuð og hvað haldiði að mín hafi verið að dreyma....
Auðvitað að ég hafi verið á árgangsmóti!!!! Það voru sko allir þarna og það var geðveikt stuð. Eini munurinn að við vorum enn að djamma þegar ég vaknaði og klukkan var einmitt um hádegi, geri aðrir betur. Árgangsmótið var haldið á Akranesi og það var ekki farið í pottinn en það var farið í sólbað8)
Jæja, ég held að maður sé að ganga af göflunum, en gaman samt. Get ekki beðið þangað til að ég fer að sofa næst og dreyma fleiri árgangsmót. Svona heldur manni bara gangandi þangað til að næsta árgangsmót verður haldið:lol:
Kveðja Ein illa steikt:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2005 16:46:53 / arg79

Myndir??

Jæja hvernig er þetta með ljósmyndarana í hópnum..... Er þetta ekki birtingarhæft eða? Maður er að farast úr spenningi að sjá afraksturinn8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2005 14:37:53 / arg79

Uppjör við 21.maí....

Jæja krakkar
Takk fyrir æðislegt kvöld á laugardaginn.
Við byrjuðum á því að fara í bekkjarpartýin sem heppnuðust rosalega vel...(allavega þangað sem ég fór og veit ekki betur miðað við stuðið á liðinu). Svo var haldið uppí skólana til að skoða, í Grundaskóla var Garðar með útsýnistúr um skólann og sýndi okkur meðal annars skólastofuna sem hann er að kenna núna. Svo skoðuðum við myndir og gömul verkefni alveg frá því í 1.bekk. Því næst var haldið í kirkjugarðinn, þar var kveikt á friðarkertum fyrir árgangsbræður okkar, Pálma, Arnar og Kalla.
Svo var það að sjálfsögðu Hlaðir, þar var sko stemmari. Fólk var almennt í svaðalegu stuði og fór allt svaðalega vel fram og gekk svona líka vel. Maturinn var frábær og þökkum við Hilmari í Fortuna það.
Skemmtiatriðin urðu ekki mörg hjá nefndinni (eitt atriði og svo einhvernvegin þá var gleðin svo mikil að við sáum ekki ástæðu til að halda áfram með skipulögð atriði), vona að enginn hafi orðið sár yfir því.
Menn dönsuðu af sér skóna og iljar, tónlistin hjá Mareni var alveg frábær með hjálp allra þessara öflugu tækja sem Ísólfur reddaði (hefði ekki getað verið betri).
Fyrsta rútan fór heim um tvö hálf þrjú og fóru nokkrar þreyttar sálir heim með henni. En skemmtunin var ekki búin því að gleðin hélt áfram til að verða hálf fimm - fimm ef ég man rétt:$ Þar sem menn bleyttu meira í sér en vant er og héldu svo áfram að dansa og syngja. Þegar á Skagan var komið var boðið í partý hjá Arnar Dór svo eftir það fór ég heim.....kl 06:108) Ég held samt að það eigi einhverjir aðrir vinninginn um að vaka lengur????  Við viljum fréttir af þeim:)
Mig langar að þakka fyrir æðislegt kvöld sem hefði ekki getað farið betur fram. Þarna var saman komið frábært fólk sem kunni greinilega að skemmta sér og öðrum:D.
Enn og aftur takk fyrir......
.....endilega ef þið viljið koma einhverju á framfæri um hvað þið voruð ánægð, látið í ykkur heyra hér á síðunni okkar.
Kveðja Erna Hafnes

» 37 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 23:58:07 / arg79

Dagskrá 21.maí 2005

Við byrjum á því að fara í bekkjarpartý, hver í sinn bekk.

Mæting upp í sinn skóla kl 17 tímalega.

Rútan kemur kl 18 og farið verður í kirkjugarðinn og sett kerti á leiðin hjá árgangsbræðrum okkar.

Kl: 18:30 verður haldið á Hlaðir og þar byrjar geimið:haha:

Maturinn hefst kl 20:00.

Rútuferðir heim verða kl: 02:00 og 04:00

Kveðja nefndin


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 14:07:02 / arg79

1 dagur í gleðina!!

Jæja kæra fólk

Núna er spennan að ná hámarki8). Á morgun munum við loksins hittast.

Það hafa komið upp spurningar um það hvort fólk vill koma með myndir af börnunum sínum til að leyfa okkur hinum að sjá afraksturinn, endilega gerið það:)

Annars ef einhver/jir óska eftir að koma með atriði þá er það velkomið.

Nánari upplýsingar um daginn á morgun verður auglýstur síðar hér á síðunni, þá er um að gera að fylgjast vel með og taka þátt í umræðunum (svona seinasta daginn). Einnig væri sniðugt ef fólk er svo tæknivætt að taka með sér stafrænar myndavélar á morgun svo við getum skellt myndunum frá herlegheitunum inn á síðuna;)

Kveðja nefndin 


» 36 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 10:32:28 / arg79

Partý Partý

Maður verður nú að skrifa einu sinni hér inn fyrir mótið og hver að verða síðastur þar sem árgangsmótið er á morgun vei vei .:D Voru ekki verðlaun í boði?????

Ég vil bara minna á partýið hjá mér á morgun að Vesturgötu 151 kl 15:30;)

Allir í mínum bekk 10.GÞ að mæta og að mæta tímanlega he he

Ása mín til hamingju með afmælið;) við höldum svo ærlega upp á afmælin á morgun!!!

Sjáumst á morgun allir sem ætla að koma

Kv.Magga Inga sem er mjög spennt.


» 45 hafa sagt sína skoðun

18.05.2005 01:24:04 / arg79

Síðustu forvöð....

til að koma með óskalög fyrir stórviðburð aldarinnar! Við Ísi ætlum að kíkja í Dalinn á morgun eða hinn og grafa upp einhverja gamla gullmola, er samt komin með dágóðan slatta ;)

Annars er ég á móti þeim sem ætla ekki að mæta.. F.E. er greininlega að standa sig best í mætingunni, enda alræmdir stuðpinnar þar á bæ! Hulda hefur góða afsökun, nýbökuð móðir (til hamingju Hulda mín), vantar samt einhverja, allavega Guðlaugu og Reyni.. komasoooo og borga!! :)

Annars sjáumst við bara hresssss á laugardaginn.. F.E mætir á Grenigrund 7 til Valdísar

Kv. Maren æsispennta :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.05.2005 21:08:53 / arg79

andri k

hallllllllló ég og ísi kíktum áðan á aðstæður á hlöðum og voru þær allar til fyrirmyndar.Við viljum hvetja alla sem ekki en hafa borgað að drífa sig í því núna.Þetta verður algjör snilld.Ég vill bara koma því að að 10SA er velkomin kl 1500 til mín á laugardaginn og endilega mæta með músik og stemminguna.Eitt enn hvar er óli dan ætlar hann ekki að mæta.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2005 23:48:35 / arg79

Hellú!!!

Jæja eru ekki allir orðnir spenntir?

Ég er allavega orðin spennt. Var að setja inn gamla sögu sem við í 10-RE sömdum í 4.bekk, hver man ekki eftir Leynifélaginu? Og svo var ég búin að setja inn framtíðaráætlanir sem við gerðum í árgangsbókina okkar, en það hvarf!!!!:cry: En það er aldrei að vita nema ég verði í stuði og ljúki þessu.Svo á ég gamla bekkurinn minn bók sem er alveg ótrúlega fyndin. Oooog svo fann ég smásagnahefti þar sem Júlla fékk fyrstu verðlaun fyrir söguna sína "Starfskraftur óskast", Gréta fékk önnur verðlaun fyrir "Fortíðardraugur" og svo Svenni í því þriðja með "Gleði sólarinnar". Ekkert smá gaman að skoða þetta. :)

María; ég fann ýmislegt annað sem við höfðum verið að bralla í 10.bekk????

Kveðja Erna H.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2005 08:10:35 / arg79

Eurovision-stemmning á kantinum

Mig langaði að segja frá því að við Rúnar, sem unnið hefur yfirburðasigur í skoðanakönnuninni um skemmtiatriði á árgangsmótinu, ætlum að vera með smáræðis atriði í kringum Eurovision-söngvakeppnina sem verður haldin sama kvöld og árgangsmótið okkar.

Við munum bjóða færustu spámönnum árgangsins birginn með því að dreifa stigagjafarblöðum til allra gesta, og þeir sem telja sig hafa góða hugmynd um hvernig söngvakeppninni lyktar geta fyllt út stigagjafarblaðið eftir því sem á líður keppnina (þeir allra færustu geta e.t.v. fyllt út allt blaðið áður en keppni hefst ;)) Verðlaunin verða af verri endanum, en eftir á að koma í ljós hvaða styrktaraðilar munu styrkja keppnina.

Ég skal svo reyna að finna til skjalatöskuna og mæta með keppnisskjölin í henni, Svenni, ef ég nenni ;)

Erling

PS. Thumbs-up fyrir Garðari sem tekur að sér fyrirpartíið fyrir 10. RE!

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.05.2005 15:04:47 / arg79

Listinn!!

Halló

Hérna kemur listinn til hliðar, þar getið þið séð hvort þið séuð ekki örugglega á honum. Og endilega hvetjið þá sem þið eruð í sambandi við að vera með (ef þeir eru ekki nú þegar búnir að skrá sig).

Þið verðið bara að afsaka að hann er ekki í neinni sérstakri röð, mátti ekki vera að því í augnablikinu að flokka í bekki og svoleiðis.

Kveðja Erna Há.


» 34 hafa sagt sína skoðun

10.05.2005 12:44:32 / arg79

Þeir sem ætla sér að koma seinna....

Hellú...

Erum búin að heyra af nokkrum sem segjast ætla að kíkja kannski bara um kvöldið og þá væntanlega eftir matinn. Viljum við í nefndinni benda þeim góðfúslega á það að þeir þurfa samt að borga 1000 krónur inn á viðburðinn. Finnst okkur það vera sanngjarnt þar sem þarf að borga fyrir leigu á húsinu og tækjunum. Þeir geta þá líka fengið far heim með rútunni.

Þannig að þeir sem höfðu hugsað sér þetta fyrirkomulag skulu samt sem áður drífa í því að borga sig inná skemmtunina með því að leggja inná reikninginn ásamt nafni. Það gengur ekki að sumir geti bara komið, það þarf að skrá þáttöku eins og margoft hefur komið fram.

Fyrir hönd nefndarinnar, Heba


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3